Djúpþrif

Ítarleg yfirferð, t.d. fyrir árstíðaskipti eða jól.

Fá verð og senda beiðni

Djúpþrif eru ítarlegri en venjuleg heimilisþrif. Við förum í hornin, bak við og undir það sem er sjaldan hreyft, hreinsum flísar og fúgur, kalk á blöndunartækjum, skápa að innan og veggi þar sem þess þarf. Niðurstaðan er heimili sem er hreint í grunninn, ekki bara á yfirborðinu.

Flestir panta djúpþrif fyrir jólin, við árstíðaskipti, áður en gestir koma til lengri dvalar eða sem byrjun á föstum heimilisþrifum. Við skoðum hvert rými með þér í beiðninni og setjum saman verk sem hentar húsnæðinu.

Viðkvæm yfirborð eins og steinn, ómeðhöndlaður viður og lakk fá rétta meðferð. Þú segir okkur frá þeim í beiðninni og við veljum efni og aðferðir eftir því.

Hvað er innifalið í djúpþrif?

  • Eldhús
  • Baðherbergi og salerni
  • Svefnherbergi
  • Stofur og alrými
  • Inngangur, gangar og stigar

Hægt er að bæta við, áætlað sér: ofn að innan, ísskápur að innan, skápar og skúffur að innan, gluggar að innan, veggjaþvottur, flísar, fúgur og kalkhreinsun.

Fyrir hverja hentar þjónustan?

  • Jólaþrif og þrif við árstíðaskipti
  • Heimili sem hafa ekki verið þrifin í grunninn í langan tíma
  • Fyrsta heimsókn áður en fastar heimsóknir hefjast
  • Íbúðir fyrir og eftir leigutíma þegar flutningsþrif eiga ekki við

Hvernig virkar þetta?

  1. Sendu beiðni Veldu þjónustu, lýstu húsnæðinu og hvað á að þrífa. Það tekur um eina mínútu og þú sérð verðáætlun strax.
  2. Við staðfestum Við förum yfir beiðnina, svörum innan eins virks dags og staðfestum tíma, verð og hvað er innifalið.
  3. Við sjáum um þrifin Starfsfólk okkar vinnur eftir gátlista fyrir hvert verk og þú færð staðfestingu á því sem var gert.

Hvernig er verðið ákveðið?

Djúpþrif eru verðlögð með tilboði, því umfangið er ólíkt milli heimila. Verðið ræðst af stærð, ástandi, fjölda baðherbergja og þeim aukaverkum sem þú velur, svo sem ofni, ísskáp, veggjaþvotti eða gluggum að innan. Þú færð áætlun strax í beiðninni og staðfest verð frá okkur áður en við mætum.

Sjá verðáætlun fyrir djúpþrif

Algengar spurningar

Hver er munurinn á djúpþrifum og heimilisþrifum?

Heimilisþrif halda hreinu heimili hreinu. Djúpþrif taka á uppsöfnuðum óhreinindum: fúgum, kalki, fitu í eldhúsi, skápum að innan og veggjum.

Hvað tekur djúpþrif langan tíma?

Oftast hálfan til heilan dag, eftir stærð og ástandi. Við segjum þér áætlaðan tíma í staðfestingunni.

Þrífið þið glugga?

Já, glugga að innan sem aukaverk. Gluggar að utan eru ekki hluti af djúpþrifum.

Önnur þjónusta M-Þrif

  • Heimilisþrif — Regluleg eða stök þrif á heimili. Veldu tíðni ef þú vilt fasta áskrift.
  • Flutningsþrif — Þrif við flutning eða leiguskipti, fyrir afhendingu eignar.
  • Húshjálp — Aðstoð við heimilisverk, t.d. tiltekt, þvott og uppvask.
  • Fyrirtækja- og skrifstofuþrif — Skrifstofur, verslanir, stofur og sameignir húsfélaga.
  • Iðnaðarþrif — Verkstæði, lagerar, framleiðslu- og byggingarsvæði.
  • Airbnb-umsjón — Þrif og umsjón við gestaskipti í skammtímaleigu.
  • Veisluþjónusta — Undirbúningur, aðstoð og lokaþrif í kringum viðburði.