Heimilisþrif

Regluleg eða stök þrif á heimili. Veldu tíðni ef þú vilt fasta áskrift.

Fá verð og senda beiðni

Heimilisþrif frá M-Þrif eru fyrir þau sem vilja koma heim í hreint hús án þess að eyða kvöldum og helgum í þrif. Við þrífum eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, stofur og ganga eftir föstum gátlista, svo þú veist nákvæmlega hvað er gert í hverri heimsókn.

Þú velur hvort þú vilt staka heimsókn eða fasta þrif vikulega, á tveggja vikna fresti eða mánaðarlega. Í föstum þrifum reynum við að senda sama starfsfólkið í hvert sinn, sem lærir inn á heimilið og þínar óskir.

Þú lætur okkur vita ef eitthvað má ekki snerta, hvaða efni má nota og hvernig við komumst inn. Allt er skráð á beiðnina og fylgir hverri heimsókn.

Hvað er innifalið í heimilisþrif?

  • Eldhús
  • Baðherbergi og salerni
  • Svefnherbergi
  • Stofur og alrými
  • Inngangur, gangar og stigar

Hægt er að bæta við, áætlað sér: ofn að innan, ísskápur að innan, skápar og skúffur að innan, gluggar að innan.

Fyrir hverja hentar þjónustan?

  • Fjölskyldur og einstaklinga sem vilja fasta þrif á heimilinu
  • Íbúðir, raðhús og einbýli á höfuðborgarsvæðinu
  • Stök þrif fyrir gesti, afmæli eða eftir annasaman tíma
  • Eldri borgara og aðra sem vilja létta undir heima við

Hvernig virkar þetta?

  1. Sendu beiðni Veldu þjónustu, lýstu húsnæðinu og hvað á að þrífa. Það tekur um eina mínútu og þú sérð verðáætlun strax.
  2. Við staðfestum Við förum yfir beiðnina, svörum innan eins virks dags og staðfestum tíma, verð og hvað er innifalið.
  3. Við sjáum um þrifin Starfsfólk okkar vinnur eftir gátlista fyrir hvert verk og þú færð staðfestingu á því sem var gert.

Hvernig er verðið ákveðið?

Verðið miðast við heimsókn og fer eftir stærð húsnæðis, fjölda herbergja og hversu oft við komum. Fastar heimsóknir eru hagstæðari en stök þrif. Aukaverk eins og ofn, ísskápur eða gluggar að innan eru áætluð sér. Þú sérð verðáætlun um leið og þú fyllir út beiðnina og við staðfestum endanlegt verð áður en nokkuð er ákveðið.

Sjá verðáætlun fyrir heimilisþrif

Algengar spurningar

Þarf ég að vera heima á meðan þrifin fara fram?

Nei. Margir viðskiptavinir skilja eftir lykil, lyklabox eða kóða. Aðgengi er skráð á beiðnina og meðhöndlað sem trúnaðarmál.

Kemur sama fólkið í hvert sinn?

Í föstum þrifum stefnum við alltaf á það. Ef skipta þarf um starfsmann fær sá nýi gátlistann og athugasemdirnar þínar.

Komið þið með efni og áhöld?

Já, nema þú viljir frekar að við notum þín. Þú tekur það fram í beiðninni.

Hvað ef ég þarf að fresta heimsókn?

Láttu okkur vita með góðum fyrirvara og við finnum nýjan tíma. Fastar heimsóknir halda sínum stað í dagskránni.

Önnur þjónusta M-Þrif

  • Djúpþrif — Ítarleg yfirferð, t.d. fyrir árstíðaskipti eða jól.
  • Flutningsþrif — Þrif við flutning eða leiguskipti, fyrir afhendingu eignar.
  • Húshjálp — Aðstoð við heimilisverk, t.d. tiltekt, þvott og uppvask.
  • Fyrirtækja- og skrifstofuþrif — Skrifstofur, verslanir, stofur og sameignir húsfélaga.
  • Iðnaðarþrif — Verkstæði, lagerar, framleiðslu- og byggingarsvæði.
  • Airbnb-umsjón — Þrif og umsjón við gestaskipti í skammtímaleigu.
  • Veisluþjónusta — Undirbúningur, aðstoð og lokaþrif í kringum viðburði.