Jólaþrif

Jólaþrif frá M-Þrif: ítarleg þrif á sýnilegum flötum, gleri, hurðum og listum fyrir jólin.

Fá verð og senda beiðni

Jólaþrif eru djúpþrif með áherslu á það sem sést þegar gestir koma: gler og speglar, hurðir og höldur, gólflistar, rofar, eldhúsframhliðar og ryk á háum flötum. Við komum þegar skrautið er komið upp eða rétt áður, eftir því sem þú vilt.

Segðu okkur hvort skrautið sé komið upp og hvort eitthvað sé brothætt eða megi ekki færast. Ofn, ísskápur og skápar að innan eru valin viðbótarverk sem við áætlum sér.

Hvað er innifalið í jólaþrif?

  • Eldhús
  • Baðherbergi og salerni
  • Svefnherbergi
  • Stofur og alrými
  • Inngangur, gangar og stigar

Hægt er að bæta við, áætlað sér: ofn að innan, ísskápur að innan, skápar og skúffur að innan, gluggar að innan, veggjaþvottur, flísar, fúgur og kalkhreinsun.

Fyrir hverja hentar þjónustan?

  • Heimili sem taka á móti gestum um jólin
  • Fólk sem vill byrja hátíðina í hreinu húsi
  • Eldra fólk og fjölskyldur með lítinn tíma í desember

Hvernig virkar þetta?

  1. Sendu beiðni Veldu þjónustu, lýstu húsnæðinu og hvað á að þrífa. Það tekur um eina mínútu og þú sérð verðáætlun strax.
  2. Við staðfestum Við förum yfir beiðnina, svörum innan eins virks dags og staðfestum tíma, verð og hvað er innifalið.
  3. Við sjáum um þrifin Starfsfólk okkar vinnur eftir gátlista fyrir hvert verk og þú færð staðfestingu á því sem var gert.

Hvernig er verðið ákveðið?

Jólaþrif eru verðlögð eins og djúpþrif: eftir stærð, ástandi og þeim verkum sem þú velur. Sendu beiðni með óskadegi og þú færð tilboð; desemberdagar bókast fljótt svo það borgar sig að senda beiðnina í nóvember.

Sjá verðáætlun fyrir jólaþrif

Algengar spurningar

Hvenær er best að fá jólaþrif?

Vikuna fyrir jól er eftirsóttust. Sendu beiðni í nóvember til að fá þann dag sem þú vilt.

Þarf skrautið að vera komið upp?

Nei, þú ræður. Ef það er komið upp förum við varlega um það og þú merkir brothætta hluti í beiðninni.

Eru gluggar þrifnir að innan?

Gler og speglar að innan eru hluti af jólaþrifum; gluggar að utan eru metnir sér.

Önnur þjónusta M-Þrif

  • Heimilisþrif — Regluleg eða stök þrif á heimili. Veldu tíðni ef þú vilt fasta áskrift.
  • Flutningsþrif — Þrif við flutning eða leiguskipti, fyrir afhendingu eignar.
  • Húshjálp — Aðstoð við heimilisverk, t.d. tiltekt, þvott og uppvask.
  • Fyrirtækja- og skrifstofuþrif — Skrifstofur, verslanir, stofur og sameignir húsfélaga.
  • Iðnaðarþrif — Verkstæði, lagerar, framleiðslu- og byggingarsvæði.
  • Airbnb-umsjón — Þrif og umsjón við gestaskipti í skammtímaleigu.
  • Veisluþjónusta — Undirbúningur, aðstoð og lokaþrif í kringum viðburði.
  • Gjafabréf — Gefðu þrif. Segðu okkur upphæð eða þjónustu og við göngum frá gjafabréfinu með þér.